34. fundur
velferðarnefndar á 149. löggjafarþingi
haldinn í Austurstræti 8-10, miðvikudaginn 27. febrúar 2019 kl. 09:30


Mættir:

Halldóra Mogensen (HallM) formaður, kl. 09:30
Ólafur Þór Gunnarsson (ÓGunn) 1. varaformaður, kl. 09:30
Andrés Ingi Jónsson (AIJ), kl. 09:30
Anna Kolbrún Árnadóttir (AKÁ), kl. 09:30
Guðjón S. Brjánsson (GBr), kl. 09:30
Guðmundur Ingi Kristinsson (GIK), kl. 09:30
Halla Signý Kristjánsdóttir (HSK), kl. 09:30
Hanna Katrín Friðriksson (HKF), kl. 09:30
Unnur Brá Konráðsdóttir (UBK) fyrir Ásmund Friðriksson (ÁsF), kl. 09:30
Vilhjálmur Árnason (VilÁ), kl. 09:30

Nefndarritari: Arnar Kári Axelsson

Bókað:

1) Fundargerð Kl. 09:30
Fundargerð 32. fundar var samþykkt.

2) 393. mál - þungunarrof Kl. 09:30
Á fund nefndarinnar mættu Þuríður Harpa Sigurðardóttir og Þórdís Viborg frá Öryrkjabandalagi Íslands og Bryndís Snæbjörnsdóttir frá Landssamtökunum Þroskahjálp. Fjölluðu þær um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

3) 435. mál - ófrjósemisaðgerðir Kl. 10:45
Á fund nefndarinnar mættu Áslaug Einarsdóttir og Þórunn Oddný Steinsdóttir frá heilbrigðisráðuneytinu. Fjölluðu þær um málið og svöruðu spurningum nefndarmanna.

4) 21. mál - lögfesting samnings Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks Kl. 10:45
Nefndin fjallaði um málið.

5) Utanspítalaþjónusta Kl. 11:10
Nefndin fjallaði um málið.

6) 257. mál - fæðingar- og foreldraorlof Kl. 11:40
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með þriggja vikna umsagnarfresti.

7) 513. mál - sjúkratryggingar Kl. 10:40
Ákveðið var að senda málið til umsagnar með þriggja vikna umsagnarfresti. Þá var ákveðið að Halldóra Mogensen verði framsögumaður málsins.

8) Önnur mál Kl. 10:45
Fleira var ekki gert.

Fundi slitið kl. 11:45